Patagonia W’s Traverese Vöðlupakki (Dömu) IV

Mjög vandaður dömupakki með Swiftcurrent Traverse vöðlum frá Patagonia og öflugum River Salt II vöðluskóm. Vöðlurnar eru hannaðar sérstaklega fyrir konur, eru léttar og meðfærilegar en jafnframt slitsterkar og þægilegar í langri notkun. River Salt II skórnir veita góðan stuðning, öruggt grip og henta vel í fjölbreyttar veiðiaðstæður.

148.900kr.

Patagonia W's Swiftcurrent Traverse Dömuvöðlur

Patgonia River Salt II Vöðluskór

Patagonia W’s Swiftcurrent Traverse Vöðlupakki IV er sterkur og vel samsettur pakki fyrir konur sem leggja áherslu á þægindi, góða hreyfigetu og áreiðanlegan búnað. Swiftcurrent Traverse vöðlurnar eru léttar og liprar, en samt byggðar til að standast reglulega notkun við krefjandi aðstæður.

Vöðlurnar eru saumaðar úr fjögurra laga endurunnu efni sem andar vel og veitir góða vörn gegn vatni og veðri. Vatnsfráhrindandi DWR-áferðin er án PFAS-efna og efnið er sterkt án þess að gera vöðlurnar þungar eða stífar. Þær taka lítið pláss í farangri og henta því vel í lengri veiðiferðir þar sem léttleiki og endingu þarf að fara saman.

Sniðið er mótað fyrir kvenlíkama, með ergonomískum fótum og klofsaumi með fellingu sem gefur góða hreyfigetu. Endurbætt saumagerð dregur úr spennu í efninu og stuðlar að betri endingu. Skálmarnar eru slitsterkar og með ökkla­vörn sem dregur úr núningssliti, en sokkarnir eru mótaðir fyrir þægindi yfir langan dag.

Hægt er að nota vöðlurnar bæði sem hefðbundnar brjóstvöðlur og mittisvöðlur. Drop-seat kerfið með flötum smellum gerir notkunina einfaldari úti við og Secure Stretch™ vöðlubelti fylgir. Að framan er stór teygjanlegur brjóstvasi með rennilás, auk innri vasa með rennilás og opins vasa fyrir smærri hluti. Festingar fyrir verkfæri, lykkjur fyrir bakpoka við bringu og þurrkunarlykkja á baki bæta við notagildið.

Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju þar sem áhersla er lögð á betri vinnuskilyrði og sanngjörn laun.

Patagonia River Salt II vöðluskórnir eru sterkir, stöðugir og hannaðir fyrir krefjandi aðstæður í ám og vötnum. Yfirbyggingin er úr Cordura® netefni sem er létt, slitsterkt og fljótt að þorna. Gúmmístyrkingar við tá og hæl verja gegn höggum og núningi þegar gengið er um grýtt undirlag.

Hátt snið og stillanleg ökklaól veita góðan stuðning og halda skónum vel að fæti. Reimakerfið er einfalt og öruggt, með hraðspennu sem auðveldar að fara í og úr skónum. Vibram® Megagrip sóli veitir gott grip á blautu og þurru undirlagi og má negla fyrir aukið öryggi þar sem aðstæður kalla á meira grip.