Laxá Mittisvöðlupakki I

Hagkvæmur og þægilegur vöðlupakki með Laxá mittisvöðlum og Laxá 3.0 vöðluskóm frá Guideline. Mittisvöðlurnar eru úr þriggja laga nælonefni, sitja vel og henta vel þegar ekki er þörf á hefðbundnum brjóstvöðlum. Skóna má velja með filtbotni eða negldum gúmmísóla.

71.900kr.

Laxá mittisvöðlur

Laxá 3.0 Vöðluskór (traction)

Laxá 3.0 Vöðluskór (filt)

Laxá Mittisvöðlupakki I er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja léttari búnað og meiri hreyfigetu en hefðbundnar brjóstvöðlur bjóða upp á. Laxá mittisvöðlurnar frá Guideline eru framleiddar úr vönduðu þriggja laga nælonefni sem er slitsterkt, með góða vatnsvörn og hrindir frá sér óhreinindum.

Sniðið er úthugsað þannig að vöðlurnar sitji vel á líkamanum án þess að þrengja. Teygjanlegt mitti og þægilegt belti auka hreyfigetu og gera þær góðar í notkun yfir langan dag. Þær henta sérstaklega vel á hlýrri dögum, í grynnra vatni eða þegar léttleiki og einfaldleiki skipta mestu máli.

Að framan eru tveir vasar með vatnsheldum rennilásum fyrir smáhluti og veiðidót. Á beltinu er D-lykkja sem nýtist vel fyrir taumaklippur, losunartöng eða annan aukabúnað. Rennd buxnaklauf gerir vöðlurnar þægilegri í notkun og auðveldar að fara í þær og úr.

Sandhlífar og sokkar eru úr sterku neoprene efni sem þolir vel notkun og eykur endingu. Sandhlífarnar falla vel yfir vöðluskó og hjálpa til við að halda sandi og smásteinum frá.

Laxá 3.0 vöðluskórnir eru léttir, slitsterkir og þægilegir skór frá Guideline. Þeir þorna fljótt og eru styrktir með gúmmíi á hliðum til að verjast sliti þegar gengið er yfir gróft undirlag eða milli hvassra steina.

Í pakkanum er val um tvo sóla. Laxá Filt er með grófum filtbotni sem er saumaður í til að tryggja betri endingu. Laxá Traction er með negldum gúmmísóla sem veitir gott grip á sleipu undirlagi. Skórnir reimast hátt, veita góðan ökklastuðning og auðvelt er að fara í þá og úr.