Patagonia Swiftcurrent Traverse Vöðlupakki III er vel útfærður pakki fyrir veiðimenn sem vilja léttan búnað án þess að gefa afslátt af stuðningi og gripi. Swiftcurrent Traverse vöðlurnar eru úr fjögurra laga H2No™ Performance öndunarefni sem er vatnshelt, slitsterkt og þægilegt í notkun. Ysta lagið er úr 100% endurunnu pólýester og vöðlurnar eru með vatnsfráhrindandi DWR-áferð.
Vöðlurnar eru liprar og fyrirferðarlitlar, sem hentar vel í ferðalög, lengri göngur og veiði þar sem gott er að halda búnaðinum léttum. Formsaumaðir fætur, ergonomískt bak og sérstakt klofsnið skila góðri hreyfigetu og draga úr álagi á sauma. Vatnsheldur YKK® rennilás að framan auðveldar að fara í og úr. Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.
Geymslumöguleikar eru góðir þrátt fyrir létta hönnun. Að innan er stór teygjanlegur vasi með rennilás fyrir verðmæti og annar teygjuvasi fyrir smáhluti. Að utan eru tveir rúmgóðir brjóstvasar með rennilásum fyrir flugubox, verkfæri og annan búnað. Aftan á eru festingar fyrir háf og aukahluti og hengilykkja auðveldar þurrkun og geymslu. Við ökklasvæði eru slitvarnarhlífar sem verja gegn núningi og sokkarnir eru mótaðir með sokkalíku sniði til að auka þægindi.
Í pakkanum er val á milli tveggja vandaðra vöðluskóa. Patagonia Forra skórnir eru léttir og hannaðir bæði fyrir göngu og veiðar. Yfirbyggingin er úr slitsterku Cordura® nylonneti sem þornar fljótt, veitir góðan stuðning og heldur skónum léttum. Hátt snið við ökkla eykur stöðugleika og vernd, og styrkt táhlíf kemur sér vel þegar vaðið er í grýttu undirlagi. Vibram® Mars sóli með XS Trek gúmmíblöndu veitir gott grip og stöðugleika, og hægt er að bæta við Grip Studs™ nöglum fyrir enn meira grip.
River Ops BOA vöðluskórnir frá Korkers eru sterkbyggðir skór fyrir mikla notkun og krefjandi aðstæður. Þeir veita framúrskarandi stuðning og stöðugleika þegar vaðið er í ójöfnu undirlagi. BOA® vírakerfið gerir auðvelt að herða skóna jafnt að fæti og tryggir örugga festu yfir langan dag við veiðar.
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Guideline Experience Waterproof Zip 21 Bakpoki
Veniard Ripple Flash
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
One80 Hjálmaljós
Einarsson Silfur 5Plus
GL Losunartöng (Stór)
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Loop Z1 12,4' #7 











































