Swiftcurrent Expedition Zip eru einkar glæsilegar rennilásavöðlur frá Patagonia. Þær eru gerðar úr þriggja- og fjögurra laga öndunarefni sem er að fullu vatnshelt og nefnist H2No®, en það hefur Patagonia prófað og þróað undanfarinn áratug. Efnið er nú slitsterkara og þjálla en áður sem gerir vöðlurnar endingargóðar og um leið afar þægilegar.
Swiftcurrent Expedition Zip eru styrktar sérstaklega í klofi og skálmum svo veiðimenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti.
Vöðlurnar eru renndar með níðsterkum YKK-rennilás sem er 100% vatnsheldur og stenst álagið við mikla notkun. Hæð vaðlanna má stilla með einföldum hætti, t.d. má færa þær neðar á heitum sumardögum. Tveir rúmgóðir vasar eru utan á vöðlunum, báðir með vatnsvörðum rennilásum. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir kaldar hendur. Vöðlubeltið er ú teygjanlegu efni sem situr í slíðrum, til varnar því að beltið færist úr skorðum. Að innanverðu er tvöfaldur vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Í þeim rúmast einnig flugubox eða ýmiss veiðitól.
Patagonia stígur sífellt fleiri skref í átt að sjálfbærari framleiðslu, enda fyrirtækið víðast hvar verið leiðandi afl í umhverfismálum. Í Swiftcurrent vöðlunum eru a.m.k. 70% efnisins endurunnið, sem kemur síst niður á gæðum og endingu.
GL Hitamælir
Jungle Cock Gervifjaðrir
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,2' #4
Guideline Experience Vatnsheldur 21L Bakpoki
Stonfo Áhaldasnúra
GL Áhaldaspóla
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Guideline Elevation 9' #6
Patagonia Stand Up Trout Trucker Black Derhúfa
GL Áhaldaspóla
Loop 7X 9' #5
Guideline Gear Bag - Veiðitaska
Guideline Stretch Vöðluelti
Áhald fyrir hálfhnút
CND Nordic 13' #8/9
Acryl-þynnir
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #6
Echo Lift 9' #8
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #3
GL Losunartöng (Stór)
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Nám REN 11,6' #6
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #2 





















