Stealth veiðivestið frá Patagonia hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt. Vestið býr að mörgum góðum eiginleikum, er bæði fjölhæft og þægilegt notkunar. Það er framleitt úr 100% endurunnu pólýesteri með teygjanlegum hliðum til að tryggja hámarks hreyfigetu.
Á vestinu eru tveir rúmgóðir renndir vasar auk margra minni vasa sem rúma allt sem þarf við árbakkann. Að auki eru nokkrir öryggisvasar fyrir símann, bíllykla og annan búnað. Í vestinu er innbyggður stangahaldari sem nýtist vel þegar skipta þarf um flugu út í miðri á. Þá er á því flugupaddi auk margra festipunkta fyrir áhöld. Á hliðum eru bönd til að stækka og minnka vestið eftir því hve vel klæddur notandinn er. Aftan á vestinu er stórt rennt hólf sem má nýta undir fatnað, nesti eða annan búnað. Stealth veiðivestið er framleitt í Fair Trade vottaðri verksmiðju.