River Salt er vandaður vöðlujakki frá Patagonia sem framleiddur er úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem kallast H2No. Jakkinn er virkilega slitsterkur og endingargóður enda hannaður til að standast álagið í krefjandi aðstæðum.
Vöðlujakkinn er með vatnsheldum YKK-rennilás, en framan á honum eru tveir rúmgóðir brjóstvasar undir fluguboxin með vatnsvörðum rennilásum. Á hliðum eru fóðraðir vasar til að hvíla eða verma hendur. Að innanverðu er netapoki sem nýtist fyrir húfu, vettlinga eða flugnanet, auk rennds vasa undir síma eða bíllykla. Festingar eru framan á jakkanum sem nýtast til að hengja losunartöng, taumaklippur eða önnur veiðitól. D-lykkja er á baki sem hugsuð er fyrir veiðiháf.
Hetta jakkans er stillanleg og útbúin þannig að hún haldist á sínum stað og skýli andlitinu í miklum vindi. Ermar eru með úlnliðsböndum til að varna því að vatn leiti upp hendurnar. Það kemur sér vel þegar fiski er sleppt, en ekki síður í mikilli rigningu. Jakkann má taka saman í mitti eftir innanundirklæðnaði hverju sinni.