Foot Tractor vöðluskórnir frá Patagonia eru einhverjir þeir öflugustu sem völ er á. Þeir veita fyrirtaks stuðning og vernd við veiðar. Skórnir eru með neglanlegum Vibram® gúmmísóla sem veitir mikið grip. Vöðluskórnir eru hannaðir og framleiddir í samstarfi með Danner® og eru þeir handsaumaðir í Portland í Bandaríkjunum.
Vöðlukórnir eru gerðir úr leðri (e. Full-Grain Leather) sem er einstaklega endingargott. Reimarnar eru þræddar í gegnum augu yfir ristina, en að ofanverðu eru þær kræktar. Afar þægilegt er að fara í og úr skónum, hvort sem þeir eru blautir eða þurrir. Skórnir eru með innbyggðu frárennsliskerfi svo þeir þorna fljótt þegar á bakkann er komið.
Tacky Original Flugubox 2X
Veniard Grey Goose Herl
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Loon Áhaldasett
Echo Lift 9' #7
Losunartöng
Loop Dry 25L Bakpoki
Loop Opti Strike - Black
Echo Lift 8' #4
Semperfli Kapok Dry Fly Dubbing Magnpakkning
Loop 7X 10' #5
Guideline Elevation 9' #5
Loop 7X 9' #7
Loop 7X 9' #6 














