Jón G. Baldvinsson hefur verið eitt þekktasta nafnið í heimi stangveiðimanna á undanförnum áratugum. Fyrsta laxinn veiddi hann í Korpu í ágúst árið 1961. Það sama ár gekk Jón í SVFR, þá 17 ára og var kjörinn í stjórn félagsins árið 1970. Hann sat í stjórn SVFR yfir 20 ár og þar af sem formaður í 6 ár. Norðurá veiddi hann fyrst árið 1967.
Þekking Jóns á Norðurá er einstök. Hann hefur ritað leiðarlýsingu þar sem hann fer með Norðurá frá upptökum til ósa og lýsir veiðistöðum árinnar, aðkomu að þeim, staðháttum og straumlagi hyljanna, líklegum tökustöðum og deilir með lesandanum minningarbrotum frá einstaka veiðistöðum.
Tacky Original Flugubox 2X
SALAR S4 15' #10/11
Guideline LPX Tactical 9' #2
Sumo Stangahaldarar með Sogskálum
McLean Salmon Weigh Net 3XL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Guideline LPX Nymph 10,8' #3
Við straumana - veiðibók 






