Virkilega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZX einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þetta er mjög öflugur fluguveiðipakki sem nýtist við fjölbreyttar aðstæður og veiðisvæði. Með stönginni má ná mikilli kastlengd, jafnvel í miklum vindi. Hún er næm þrátt fyrir mikinn hraða og fer ótrúlega vel með nettum taumum. Stöngina má nota bæði í lax- og silungsveiði og með henni má kasta vel flestum gerðum flugna.
Loop ZX einhendurnar eru hraðar (e. fast action) og nýtast best þeim sem eru með tiltölulega hraðan kaststíl. Þær henta vel í yfirhandarköst og bera þungar línur og stórar flugur. Stangirnar eru virkilega öflugar og eru kjörnar í stærri fiska við krefjandi aðstæður. Þær eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross SX, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl.
Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína með stuttum skothaus sem hleður stöngina auðveldlega og býður upp á gott jafnvægi og stjórn. Hún flýtur hátt og rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar, jafnvel við krefjandi aðstæður.
Línan er með sleipri kápu og tvílita hönnun – gráleitur skothaus og appelsínugul rennilína – sem auðveldar tímasetningu kasta og hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt. Hún leggst mjúklega á vatnið og raskar því lítið.
Loop ZX stangarpakkinn er í alla staði vandaður og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Krinkle Mirror Flash
Loop ZT Tvíhendupakki 13,2' #8
Veniard Grey Partridge Neck Natural
Veniard Peacock Sword Tails
Reiða Öndin - Sarpur
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Þræðari Elite 1,4 mm
Frödin Crooked Hnýtingaskæri
Elite Fluguhnýtingasett
Semperfli Superfine Dubbing Magnpakkning
Leech Cover - Intro - Yellow (Yfirgleraugu)
Guideline Logo Svört Derhúfa
Veniard Hare Mask
GL Losunartöng (Stór)
Jungle Cock Gervifjaðrir
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Guideline Elevation 9,9' #8
Losunartöng
Hare's Ear Dubbing Magnpakkning
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7
GL Losunartöng
Stonfo Trimmer - Snyrtir
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Rapala Laxaháfur M
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4
Norðurá - enn fegurst áa
Water Repellent - Vatnsvörn
Loon Bench UV ljós
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Tengi á þvingu - Joint Block
Griffin Hnýtingagálgi
Veniard Silver Pheasant Body Feathers
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Fishpond Quickshot Stangarfesting
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Costa Ferg XL Veiðigleraugu 580G
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7 




















