Verulega flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi tvíhendupakki hentar í alla almenna laxveiði, í meðalstórum og stórum ám. Stöngin er verulega öflug og má nota með hverskonar aðstæðum. Tvíhendan býður upp á langa kastvegalengd og er heppileg við allar veðuraðstæður.
Loop Z1 tvíhendurnar eru fáanlegar í fjölbreyttum útfærslum sem henta mismunandi veiðisvæðum og aðstæðum. Þær eru fisléttar og nákvæmar, með mjög góða línustjórnun. Líkt og aðrar Z1 stangir eru þær meðalhraðar (medium fast action), með djúpri hleðslu og sterkum botni. Hver stöng er hönnuð með tiltekið veiðisnið í huga, ekki eftir einni sameiginlegri forskrift.
Z stangirnar eru bæði léttari og sterkari en Cross S1 forverar þeirra, m.a. vegna nano resin efnis og 40–45 tonna nano graphene koltrefja. Þær bjóða upp á meiri næmni og kastvegalengd ásamt öflugri svörun. Allar stangirnar eru smíðaðar með handföngum úr fyrsta flokks korki, fisléttum hjólasætum og keramikfóðruðum lykkjum úr títaníum – allt ætlað til þess að endast.
Loop Evotec G5 hjólið sem fylgir með er fimmta kynslóð þessa þekkta hjóls. Það er búið lokuðu, vatnsheldu Power Matrix diskabremsukerfi sem veitir jafna og örugga bremsu í átökum við stóra fiska. Hjólið er úr renndu áli með ryðfríum íhlutum og er með endurbættum bremsu- og spóluhnöppum sem bæta grip og stjórn.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – hágæða, samfelld tvíhendulína sem þróuð er sérstaklega fyrir íslenskar laxveiðiár. Hún er ögn þyngri en hefðbundinn línukvarði gefur til kynna, sem gerir hana einstaklega auðvelda í hleðslu með lítilli fyrirhöfn. Línan leggst mjúklega á vatnsflötinn og nýtist frábærlega í aðstæðum þar sem nákvæmni og fín framsetning skiptir máli – t.d. í logni, við lága vatnsstöðu eða mikla birtu. Hún virkar jafn vel í stuttum og löngum köstum, og fer sérlega vel með smáflugur, túpur og langa frammjókkandi tauma.
Loop Z1 tvíhendupakkinn er sérvalinn fyrir íslenskar aðstæður – frábær kostur fyrir þá sem vilja samspil afli, mýktar og alvöru gæðum í hverju kasti.
Monomaster Taumagleypir
GL Losunartöng (Stór)
Dropper Festingar
Loop Connecting Derhúfa
Stonfo Þræðari
Loop Opti Dry Fly - Storm Blue
Fishpond Blizzard Kælitaska
Water Repellent - Vatnsvörn
Patagonia Stand Up Trout Trucker Black Derhúfa
Fishpond Dakota 31" stanga- og hjólataska
Við straumana - veiðibók
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Fulling Mill Pocket Flugubox - Blue
Guideline Elevation 9' #5
Taumaklippur
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Patagonia Guidewater S. Green - Vatnsheld Mittistaska
Loon Krókabox / Kónabox
Guideline Logo Grá Derhúfa
Leitin af stórlaxinum
Loon Leader Straightener - Taumastrekkjari
Costa Blackfin Pro Gray Veiðigleraugu 580G
Frödin FITS Túpunál
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7 






















