Rosto er hálfrennd hettupeysa frá Loop, framleidd úr endurvinnanlegu pólýesterefni og elastan. Peysan er meðhöndluð með vatnsfráhrindandi efni, hún er afar teygjanleg og andar vel. Á peysunni er hár kragi og góð hetta úr örflísefni til að halda vindinum frá notandanum.
Rosto peysuna má nota sem millilag á köldum dögum, en hún andar þó það vel að hana má einnig nota á heitari sumardögum. Allir saumar eru styrktir sérstaklega til að tryggja aukna endingu. Peysan er mjög létt og fyrirferðarlítil og því auðvelt að hafa hana meðferðis, til taks þegar á þarf að halda.