Loop Q 7/9 er hjólið sem stendur undir krefjandi verkefnum – hvort sem veitt er í straumþungum ám eða í stöðuvötnum. Það hentar vel fyrir öflugar einhendur í línuþyngd #7–9 og switch-stangir. Hjólið veitir jafnvægi, öryggi og áreiðanleika þar sem álagið eykst. Það er smíðað úr sterku og léttu steyptu áli, með V-laga stórri spólu sem tryggir hraðvirka línuupptöku og lágmarks línuminni. Dökkgrá áferð og L-merki Loop í hliðinni gefa því fágaðan svip, sem fellur vel að flestum stöngum.
Innsigluð diskabremsa með nægu afli til að takast á við kröftuga fiska. Handfangið er þægilegt og öruggt, og spóluskipting einföld og áreiðanleg með skrúfu sem helst föst – ekkert sem týnist í grjóti, sandi eða veiðitöskunni.
Helstu eiginleikar:
• Hentar í lax og sjóbirting
• Fyrir einhendur í #7–9 og switch-stangir
• Lokuð grind og V-laga spóla fyrir jafnt og gott flæði
• Slétt, innsigluð bremsa – örugg og viðhaldsfrí
• Öruggt skrúfukerfi – engir lausir hlutir
• Fáguð dökkgrá áferð með Loop merki
Tæknilýsing:
• Stærð: #7–9
• Smíði: Steypt ál
• Litur: Gunmetal grátt
• Spóla: V-laga stór spóla
• Bremsa: Innbyggð og innsigluð
• Spóluskipting: Einföld skrúfusamsetning
• Hulstur: Nylon hulstur fylgir