Laxá Zip Vöðlupakki II er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja þægindi og áreiðanleika í einum pakka. Vöðlurnar eru framleiddar úr slitsterku 4-laga nælonefni sem er meðhöndlað til að hrinda frá sér vatni og óhreinindum. Saumar eru lokaðir með Sidewinder-tækni sem eykur bæði styrk og hreyfigetu.
Framan á vöðlunum er vatnsheldur TIZIP-rennilás sem gerir mjög auðvelt að fara í þær og úr. Ofarlega eru tveir rúmgóðir brjóstvasar með lóðréttum rennilásum fyrir flugubox og annað veiðidót. Á hliðum eru flísfóðraðir vasar til að verma hendur. Axlarbönd eru stillanleg og vöðlubeltið teygjanlegt með festingu að aftan. Sandhlífar eru úr slitsterku efni með teygju sem fellur vel yfir skóna, og sokkarnir eru úr þéttu neoprene efni, mótaðir fyrir hvorn fót.
Í pakkanum er val á milli tveggja ólíkra vöðluskóa eftir því hvað hentar best. Guideline Alta NGx skórnir eru hannaðir fyrir mikinn stöðugleika og álagsþol. Þeir eru með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem veitir gott grip á blautu og sleipu undirlagi. Stífur miðsóli og styrkt uppbygging gera þá hentuga fyrir gróft landslag og langa daga við veiðar.
Korkers Chrome Lite skórnir eru hins vegar léttari og liprari, innblásnir af íþróttaskóm. Þeir eru með BOA® vírakerfi sem gerir auðvelt að herða og losa þá og tryggir góða aðlögun. Kling-On Rock™ sóli veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi og hönnun þeirra stuðlar að góðri hreyfigetu, sem hentar vel þeim sem ganga mikið.
Loop Classic 8/11
Guideline NT11 Trout 9' #6
Guideline NT11 Salmon 13,9' #8/9
Nám REN 9' #5
Krinkle Mirror Flash
Loon Bench Boss - Verkfærageymsla fyrir fluguhnýtara
Loop ZT 13,2' #8
Loon Razor 5“ Hnýtingaskæri 

































