Laxá Vöðlupakki I er traustur og fjölhæfur pakki frá Guideline sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Laxá 2.0 vöðlurnar eru framleiddar úr slitsterku 4-laga nælonefni og eru hannaðar með áherslu á endingu og hreyfigetu. Efnið er vistvænt og meðhöndlað til að hrinda frá sér vatni og óhreinindum. Saumar eru lokaðir með Sidewinder-tækni sem eykur styrk þeirra og sveigjanleika í notkun.
Á vöðlunum eru tveir stórir renndir brjóstvasar sem rúma flugubox og annað veiðidót. Auk þess eru tveir fóðraðir vasar til að verma hendur. Axlarólar og vöðlubelti eru stillanleg og úr teygjanlegu efni sem tryggir góða aðlögun að líkamanum. Sandhlífar eru álagsþolnar og með innfelldri teygju sem heldur þeim vel yfir vöðluskónum. Sokkarnir eru úr sterku neoprene efni og mótaðir fyrir hægri og vinstri fót til aukinna þæginda.
Í pakkanum er hægt að velja á milli þriggja gerða af vöðluskóm eftir þörfum og aðstæðum. Laxá 3.0 skórnir eru léttir og slitsterkir, með góðum filtbotni eða negldum gúmmíbotni (traction) fyrir aukið grip. Þeir veita góðan ökklastuðning og eru fljótir að þorna.
Korkers Stealth Sneaker vöðluskórnir eru léttir og liprir, hannaðir fyrir þá sem ganga mikið og vilja hámarks hreyfigetu. Þeir eru úr slitsterku efni sem þornar hratt og með Kling-On Rock™ sóla sem veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi. Hægt er að bæta við nöglum til að auka stöðugleika við krefjandi aðstæður.
Acryl-þynnir
Dropper Festingar
Stonfo Bobbin Elite 2 - Keflishalda
Jungle Cock Gervifjaðrir 









































