Laxá Mittisvöðlupakki IV er vandaður pakki fyrir veiðimenn sem vilja léttar og þægilegar mittisvöðlur með öflugum vöðluskóm. Laxá mittisvöðlurnar eru framleiddar úr þriggja laga nælonefni sem er slitsterkt, með góða vatnsvörn og hrindir frá sér óhreinindum. Þær henta vel á hlýrri dögum, í grynnra vatni eða þegar meiri hreyfigeta og léttleiki eru í forgangi.
Sniðið er úthugsað svo vöðlurnar sitji vel á líkamanum án þess að hefta hreyfingar. Mittið er teygjanlegt og beltið stillanlegt, sem gerir auðvelt að laga þær að líkama og klæðnaði. Tveir vasar með vatnsheldum rennilásum eru að framan og nýtast vel fyrir smáhluti og veiðidót. Á beltinu er D-lykkja fyrir taumaklippur, losunartöng eða annan aukabúnað.
Rennd buxnaklauf eykur þægindi yfir daginn og einfaldar notkun. Sokkarnir og sandhlífarnar eru úr sterku neoprene efni sem þolir vel álag. Sandhlífarnar falla vel yfir vöðluskóna og hjálpa til við að halda sandi og smásteinum frá.
River Ops BOA vöðluskórnir frá Korkers eru hannaðir fyrir mikla notkun og erfiðara undirlag. Þeir eru sterkbyggðir, stöðugir og veita góðan stuðning þegar vaðið er í grýttum ám eða gengið um ójafnt land. BOA® vírakerfið gerir auðvelt að herða skóna jafnt að fæti og losa þá fljótt þegar veiðidegi lýkur.
Skórnir eru úr slitsterkum efnum sem þola vel hnjask og henta vel þeim sem verja löngum dögum við veiðar. Þetta er traustur mittisvöðlupakki fyrir þá sem vilja léttleika mittisvaðla en öryggi og stuðning öflugra vöðluskóa.
Guideline Embrace Einhendupakki 10,6' #3
Guideline Rivolt 9' #7
Tacky Pescador Medium - Clear- Burnt Orange Flugubox
Leech Anti Fog - Móðuvörn
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
One80 Hjálmaljós
Úr búri náttúrunnar
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Fishpond High And Dry - Derhúfa fyrir börn
Loop Evotec G5 6/8
Tacky Pescador Leaflet- Large- Dynamic Foam Millispjald
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - B. Brown
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - R. Green
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Þræðari Elite 1,4 mm
Fishpond Swivel Áhaldagormur 



























