LPX Chrome tvíhendupakkinn frá Guideline er öflug lausn fyrir veiðimenn sem sækjast eftir lengri köstum og traustri stjórn í stærri laxveiðiám. Pakkinn samanstendur af 13,9 feta LPX Chrome tvíhendu, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu og Laxá flotlínu – vandlega samsett til að mæta þörfum krefjandi aðstæðna. Ef óskað er eftir öðru línuvali má taka það fram í skilaboðareitnum í körfunni.
Stöngin er smíðuð með ¾ djúpri hleðslu sem virkjast snemma í kastinu, án þess að draga úr spennu og hraða. Hún er stöðug, kraftmikil og bregst hratt við – sem nýtist sérlega vel við veiði í breiðum og vatnsmiklum ám. Þessi lengri útgáfa er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarksdrægni án þess að fórna nákvæmni, og hentar jafnt í hefðbundna laxveiði sem og við straumharðar aðstæður.
Guideline Halo fluguveiðihjólið er létt, sterkt og með lokuðu breiðkjarna-hönnun sem kemur í veg fyrir að línan festist. Diskabremsan er vatnsheld, kraftmikil og krefst lítillar umhirðu – sem tryggir örugga og stöðuga notkun við átök við stóra fiska.
Á hjólinu er undirlína og Laxá flotlína – hágæða lína sem hönnuð er með laxveiði í stórum ám í huga, á borð við Laxá í Aðaldal, Jöklu og Sogið. Línan situr hátt í vatni og rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar, þökk sé vel útfærðri þykkt rennilínu sem stillt er eftir línuþyngd. Hún er með mjúkri kápu sem gerir hana auðvelda í meðhöndlun og veitir gott flæði við bæði köst og stripp.
Ítarupplýsingar um tvíhenduna
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum.Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar hanni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Virkni hverrar stangar er misjöfn eftir lengd og línuþyngd til að nýtast veiðimönnum í ólíkum aðstæðum. Guideline mælir með tvennskonar línum með þessum stöngum en þær eru 3D+, í venjulegri lengd eða styttri, eða 4D Compact Multi Tip línukerfinu.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Fishpond Heritage Trucker Hat - Sandbar/Orange Derhúfa
Fishpond Henry's Fork Hat - Honey Derhúfa
Zap-A-Gap Lím með bursta
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Fishpond Tacky Original RiverMag Flugubox
Loop Logo Húfa Rauð
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Loop Logo Meshback G. White Derhúfa
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
Loop ZT Tvíhendupakki 14' #9
Vac Rac Stangahaldari með segli
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Acryl-flugulakk
Fishpond Tacky Pescador Flugubox XL
Loop Opti Rapid - Arctic Blue
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Loop Nordic Beanie Soft Black Húfa
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Loop Dry Tactical 15L Bakpoki
Fishpond Cross Current Brjóstpoki
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Smith Creek Middle Fork Fly Patch - Flugugeymsla
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Costa Taxman Veiðigleraugu 580G
Tacky Original Flugubox
Jungle Cock Gervifjaðrir
Stonfo Taumaspóluhaldari
Sealskinz Brooke - Vatnsheld Ullarderhúfa
Guideline Experience Vatnsheldur 21L Bakpoki
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Fishpond River Bank Backpack Duskwood - Bakpoki
Fisherman 165N Handvirkt Björgunarvesti
Loop Opti Rapid - Storm Blue
Smartwool Neck Gaiter Black - Hálskragi
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa
Patagonia Stealth Pack S. Green Bakpoki
Fishpond Elkhorn Lumbar Pack Mittistaska - Tortuga
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8
Loop Logo Húfa Vínrauð
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Loon Leader Straightener - Taumastrekkjari
Fishpond Elkhorn Lumbar Pack Mittistaska - Pebble
Lykkjunál
Hnútaherðari
Acryl-þynnir
Guideline Neck Gaiter Höfuðhlíf - Dark Mustard
Guideline Elevation 13' #8/9
Taumaklippur
Fishpond Dorsal Fin Quilted Trucker Hat Campfire Derhúfa
Patagonia Guidewater Blue - Mittistaska
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Patagonia Take a Stand Trucker Hat B. Brown Derhúfa
Opinel Trekking N°8 Burgundy Vasahnífur
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3 



















