LPX Chrome fluguveiðipakkinn frá Guideline er tilvalinn í laxveiðina. Hann samanstendur af LPX Chrome switch-stöng, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu og Sandá tvíhendulínu í heildstæðri samsetningu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
LPX Chrome switch-stangirnar eru hannaðar með nýjustu tækni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu sem nýtist snemma í kastinu án þess að draga úr hraða stanganna. Léttleikandi og stöðugar með frábæra viðbragðsflýti sem tengir veiðimenn við kastið á einstakan hátt. Þessar 11,7 feta stangir eru í raun stuttar og ofurléttar tvíhendur, sérstaklega hannaðar fyrir tvíhenduköst í íslenskum ám – tilvaldar í veiði á lax og sjóbirtingi.
Halo fluguveiðihjólið frá Guideline er úr renndu áli og tiltölulega eðlislétt. Það er með lokuðu breiðkjarna-hönnun sem kemur í veg fyrir að línan festist og auðveldar að ná inn slaka hratt. Vatnsþétt diskabremsa tryggir öflugt og viðhaldslaust bremsukerfi.
Línan sem fylgir með er Sandá – vönduð og vel hönnuð tvíhendulína þar sem skothaus og rennilína renna saman í eina samfellda heild. Hún hentar einstaklega vel í meðalstórum ám þar sem þarf að bregðast við breytilegum aðstæðum. Sandá er tiltölulega framþung og nýtist einstaklega vel á stuttu færi, en skilar einnig frábærum köstum á meðallöngu færi með bæði smáflugum og túpum. Hún er fjölhæf lína sem hentar jafnt fyrir veltiköst sem og yfirhandarköst og skilar áreynslulausum köstum með góðri línustjórn.
Ítarupplýsingar um flugustöngina
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline. LPX Chrome switch-stangirnar skarta úrvals handfangi úr fyrsta flokks korki. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Leech ATW1 - Intro - Copper
Þræðari Elite 1,4 mm
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Darkhorse Vöðluskór (Dömu) - #9/42
Þræðari Elite 1mm
Við straumana - veiðibók
Echo Lift 9' #7
Áhaldaspóla
Flylab Fluguhnýtingasett
Kaiman Morsetto Hnýtingaþvinga
Acryl-þynnir
Loon Soft Head Clear - Hnýtingalakk
Vise Keflishalda
Leitin af stórlaxinum
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Zap-A-Gap Lím með bursta
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,2' #4
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Dubbing tól
Stonfo Áhaldasegull
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Leech Eagle - Pro - Yellow
McLean Weigh-Net Medium (M111) - Silungaháfur með Innbyggðri Vog
Loop Dry 25L Green Bakpoki
Loop Nordic Beanie Blue Húfa
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Guideline Logo Svört Derhúfa
Guideline Reelbag - Hjólataska
Loop 7X 9,6' #6
Bodkin - Nál með krók
Guideline Elevation 13' #8/9
Loop 7X 12,6' #9
Stonfo CDC Winding Tool
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #3
Fishpond Ripple Hjólataska M
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Lever Fluguhnýtingasett
Guideline Elevation 9' #7
Loop ZT Tvíhendupakki 13' #7
CND Nordic 14' #9/10 























