Frábær fluguveiðipakki frá Guideline sem hentar vel í laxveiði og veiði á stórum urriða, bæði staðbundnum og sjógengnum. Pakkinn inniheldur LPX Chrome flugustöng, Halo fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet+ flotlínu eða sambærilega línu. Vinsamlegast skráið óskir um aðrar línugerðir í athugasemdareitinn við kaup.
LPX Chrome stangirnar eru hannaðar með nýjustu tækni frá Guideline. Þær bjóða upp á ¾ djúpa hleðslu og afl sem virkjast snemma í kastinu án þess að það dragi úr hraða. Þær eru léttar í hendi, með miklum stöðugleika og fljótu viðbragði sem gefur einstaklega nákvæma og tengda kastupplifun. Þetta eru öflugar stangir sem henta vel í veiði á urriða, lax og sjóbirting í fjölbreyttum ám og skera sig úr í sínum verðflokki.
Halo fluguhjólið í pakkanum kemur frá Guideline og er unnið úr renndu áli. Það er létt og með lokaðri hönnun sem kemur í veg fyrir að línan festist milli spólu og ramma. Hjólið er með öflugu og vatnsheldu diskabremsukerfi sem krefst lágmarks viðhalds. Breiðkjarna hönnunin (full frame) gerir veiðimanni kleift að ná slaka inn hratt og minnkar líkur á línuminni.
Hjólið kemur uppsett með undirlínu og Bullet+ flotlínu. Bullet+ er uppfærð og betrumbætt útgáfa af Bullet-línunni sem hefur notið mikilla vinsælda meðal íslenskra veiðimanna. Hún býður upp á mýkri framsetningu og enn betri stjórn. Þrátt fyrir stuttan haus (9,25 m) heldur hún jafnvægi í lofti og auðveldar bæði löng og nákvæm köst með litlu afli.
Línan hentar sérstaklega vel við íslenskar aðstæður – jafnt í veltiköstum sem hefðbundnum yfirhandarköstum. Hausbyggingin tryggir góða framsetningu fyrir fjölbreytt úrval flugna, allt frá þurrflugum upp í keilutúpur. Bullet+ er með grágrænan haus og skærgræna rennilínu, grönnum lykkjum á báðum endum og ID-merki að framan. Hún er framleidd án skaðlegra efna og hönnuð til að virka vel við krefjandi aðstæður.
Ítarupplýsingar um flugustöngina
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem nefnd er C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er hjólasætið búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Stangirnar eru 9,9 fet að lengd og eru smíðaðar til að bera stórar flugur þegar veiða á stóra fiska. Stangirnar eru gefnar upp fyrir tiltekna línuþyngd sem er á réttum kvarða og því þarf ekki að yfirhlaða þær með þyngri línu.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðuleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnin (e. Resin) sem notuð er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Loon Bite Ease - Flugnabitsáburður
Stonfo Áhaldasnúra
Stonfo Razor - Hársnyrtitól
Hnútahulsa
Guideline LPX Chrome Tvíhendupakki 12,3' #6/7
Vac Rac Stangahaldari með sogskálum
Guideline Stream Thermometer - Vatnshitamælir
Vatnsdalsá
Stonfo Þræðari
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Loon Áhaldaspóla
Losunartöng
McLean Salmon Weigh Net XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Loon Fly Spritz 2 - Þurrfluguúði
Tacky Pescador XL - Dynamic Foam - Smoke Grey Flugubox
Sumo Stangafestingar með Segli
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
Loon Hydrostop - Vatnsvari
Veiði, von og væntingar
Guideline Logo Grá Derhúfa
Stonfo Taumaspóluhaldari
Costa Loreto Gold Veiðigleraugu 580G
Guideline Logo Svört Derhúfa
Hagla- og kúlugeymslur
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
Hnútaherðari
Fishpond Headgate Taumaspóluhaldari
Loon Stream Soap - Vistvæn sápa
Shark Tooth Skurðarteygja M
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
McLean Weigh-Net Small (M112) - Silungaháfur með Vigt
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
GL Áhaldaspóla
Við straumana - veiðibók
Loop Connecting Derhúfa
Zap-A-Gap Lím með bursta
Þræðari Elite 1,4 mm
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Veniard Teal Duck Flank Feathers
Dubbing tól
Frödin FITS Túpunál
Leech ATW6 Yellow - Intro - Yellow
Loon Amadou Þurrfluguklútur 




















