Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Nova fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Elevation 9,9′ #6 er einstaklega fjölhæf stöng sem hentar bæði í ár og vötn. Hún er frábær í lax- og silungsveiði, með mikla stjórn og næmni í köstum, hvort sem veitt er með straumflugu, púpum eða þurrflugu. Lengdin bætir við sveigjanleika í mendingum og framsetningu og gerir hana sérstaklega heppilega í straumvatn.
Elevation flugustangirnar eru afar léttar meðalhraðar stangir sem gerðar eru fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna byggir á vistvænni hugsun og nútímalegum framleiðsluaðferðum. Þær eru efnislitlar án þess að tapa afl eða styrk og henta því jafnt byrjendum sem vönum veiðimönnum. Skaftið hleðst jafnt niður frá toppi og veitir stöðuga og fyrirgefandi svörun í kastferlinu.
Með stönginni fylgir Nova fluguveiðihjól – vandað hjól frá Guideline úr endurunnu áli, án einnota plastefna. Nova-hjólin eru búin öflugum bremsubúnaði sem er sérsniðinn að stærð hvers hjóls og hannaður til að standast álag, viðhalda stöðugu viðnámi og tryggja áreiðanlega stjórn í öllum aðstæðum. Tæknileg útfærsla og hönnun spólu og ramma eykur styrk og léttleika með nútímalegri fagurfræði og mikilli nákvæmni.
Á hjólinu er Bullet+ flotlína, ný og endurbætt útgáfa af einni vinsælustu línu Veiðiflugna. Hún er með 9,25 metra stuttum og kraftmiklum haus sem hleðst hratt og skilar löngum, nákvæmum köstum með lágmarks áreynslu. Línan er afar fjölhæf, nýtist í þröngum kaststöðum og er tilvalin í bæði hefðbundin fluguköst og veltiköst. Hún leggur fluguna mjúklega fram og veitir mikla stjórn – hvort sem kastað er þurrflugu, púpum eða litlum túpum.
Elevation stangarpakkinn er virkilega athyglisverður og á afar sanngjörnu verði – glæsilegt val fyrir veiðimenn sem vilja nýta sömu stöng í ólíkar aðstæður við íslenskar ár og vötn.
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Loop Fly Trucker Cap Burnt Russet Derhúfa
Patagonia Fly Catcher Hat C. Brown Derhúfa
Hatch Finatic 12+
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa
Guideline Embrace Einhendupakki 9' #7
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Patagonia Take a Stand Trucker Hat S. Blue Derhúfa
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Loop Trak Einhendupakki 9,6′ #7
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
Loop Opti Speedrunner - Storm Blue
Guideline Fario Click 2/3
Guideline Fly Fishing Cap K. Pumpkin Derhúfa
Guideline LPX Tactical 9' #3
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7 

















