Guideline Aeon – Black/Silver #9/11

> Kraftmikið hjól í alvöru laxveiði
> Fyrir tvíhendur 13-15 fet að lengd
> Hentar línuþyngdum #8/9 til #10/11
> Vegur 350 gr.

91.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Guideline Aeon – Black/Silver #9/11 Fluguhjól

Aeon #9/11 er hannað fyrir veiðimenn sem þurfa hjól sem tæklar straumþungar ár, þyngri línur og stóra laxa – án málamiðlana. Þetta hjól skilar bæði miklu bremsuafli og stöðugleika, sem gerir það tilvalið í hverskonar laxveiði. Það er rennt úr T6061 áli, sem er bæði létt og einstaklega slitsterkt – til notkunar ár eftir ár.

Inni í hjólinu er innsigluð kolefnisbremsa með allt að 7,5 kg mótstöðu, sem veitir stöðuga og áreiðanlega stjórn – bæði í rólegri veiði og í átökum við stóra fiska. Full-frame grindin heldur styrk og jafnvægi, jafnvel með lengri og þyngri tvíhendum, og stór spóla tryggir að lína leggist jafnt og með lágmarks minnissöfnun.

Vænglaga bremsuhnappurinn er hannaður til að vera þægilegur notkunar, jafnvel þegar blautt eða kalt er í veðri. Með honum næst nákvæm stýring með góðu gripi. Hjólið hentar vel með tvíhendum í línuþyngd #8-#11, 13-15 fet að lengd.

Helstu eiginleikar:

  • Rennt úr hágæða áli – gríðarsterkt og létt
    • Innsigluð kolefnisbremsa með allt að 7,5 kg afli
    Full-frame sem veitir aukið jafnvægi og vernd gegn línusnúningi
    • Stór spóla (large arbor) – fljótleg línuupptaka
    • Vænglaga bremsuhnappur – gott grip og auðveld stilling í hvaða veðri sem er
    • Línurýmd merkt innan á hjólfótinn – einfaldar línuval og uppsetningu
    • Hægt að snúa fyrir hægri eða vinstri hönd

Tæknilýsing:

  • Stærð: #9/11
  • Þvermál: 110 mm
  • Spólubreidd: 32 mm
  • Þyngd: 350 g
  • Línurýmd: t.d. Spey #9/10 (34 m) + 200 m 30 lb undirlína
  • Línuflokkar: Hentar stöngum í #8/9 til #10/11