Veniard Grey Squirrel Tail – Íkorni

Veniard Grey Squirrel er þétt og fallegt íkornahár sem er mikið notað sem vængefni í laxaflugur og silungsflugur. Gefur vængnum jafna áferð og klassískt yfirbragð.

1.095kr.

Grey Squirrel frá Veniard er vinsælt fluguhnýtingaefni úr íkorna­hárum sem hafa verið notuð í laxaflugur og silungsflugur um langa hríð. Hárin eru þétt, fíngerð og liggja vel saman, sem gerir þau sérstaklega hentug sem vængefni í hefðbundnar flugur.

Efnið kemur við sögu í fjölmörgum þekktum flugum. Guli liturinn er meðal annars notaður í Munro Killer og Rektor, grái í Blue Charm, blái í Laxá blá og svarti í Green Butt.