Fishpond Thunderhead Eco Duffel Taska M

Töskur gerast vart vandaðri en Thunderhead Eco Duffel frá Fishpond. Taskan er framleidd úr endurunnum plastefnum og er 100 % vatnsheld. Hún rúmar 39 lítra og hefur mikla burðargetu.

64.995kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Töskur gerast vart vandaðri en Thunderhead Eco Duffel frá Fishpond. Taskan er framleidd úr endurunnum plastefnum og er 100 % vatnsheld. Hún rúmar 39 lítra og hefur mikla burðargetu. Á töskuna má festa ýmiskonar búnað að utanverðu, svo ekki þarf að skila neitt eftir. Efnið er gríðarlega slitsterkt og eru öflug handföng eru á hvorri hlið auk axlarólar. Í henni er eitt stór aðalrými auk minni vasa að innan og utan. Rennilásar eru af nýjustu gerð, að fullu vatnsheldir og með ljúfloku. Stærð töskunnar er 53 x 32 x 28 cm og er eiginþyngd hennar 1,5 kg.

Sjálfbærni

Ný vara, gamalt efni

Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.