Fishpond FlyLite Veiðivesti (Dömu)

Vandað veiðivesti frá Fishpond hannað af konum fyrir konur. Létt og stillanlegt með 15 vösum, stangarhaldara og slíðri fyrir háf. Fóðraðar axlarólar og segullokun auka þægindi. Passar með flestum Fishpond bakpokum – úr endurunnu efni og sniðið fyrir alvöru veiðikonur.

37.995kr.

Ekki til á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Fishpond FlyLite W‘s Veiðivesti

FlyLite veiðivestið frá Fishpond er hannað frá grunni með þarfir kvenna í fyrirrúmi – þróað og prófað af konum fyrir konur. Létt, loftræst og einstaklega vel útfært vesti sem býður upp á 15 vasa, innri og ytri, ásamt snjöllum festingum og hámarks hreyfanleika við veiðar.

Vestið er með netað bak- og bringusvæði sem tryggja öndun og léttleika á löngum dögum. Stillingarkerfi á bringuól með sleðabraut gerir auðvelt að aðlaga sniðið og segullokun að framan gerir aðgang fljótlegan og hljóðlátan. Á bakinu er stór vasi fyrir auka fatnað eða drykk, ásamt slíðri fyrir háf og stangarhaldara að framan. Festingar úr Hypalon® veita rými fyrir flotefni, taumaspólur og tól.

Vestið smellpassar með flestum Fishpond bakpokum og er úr endurunnu Cyclepond efni sem sameinar léttleika, styrk og umhverfisvitund.

Helstu eiginleikar:

  • Sérhannað fyrir konur – þróað og prófað af veiðikonum
    • 15 vasar að innan og utan fyrir allan nauðsynlegan búnað
    • Léttur, netaður bak- og bringuhluti – öndun og léttleiki
    • Fóðrarðar axlarólar sem dreifa þyngd
    • Stillanleg bringuól með sleðakerfi – sniðið að líkama
    • Segullokun að framan
    • Slíður fyrir háf og stangarhaldari
    • Bakvasi fyrir auka fatnað, vatn eða nestið
    • Hypalon® festingar fyrir tól og aukabúnað
    • Samhæft við flesta Fishpond bakpoka
    • Þyngd: 590 g