Einarsson Silfur 7Plus Fluguhjól
Einarsson 7Plus er hannað fyrir veiðimenn sem þurfa hjól sem stenst átök við stærri fiska og virkar jafnt með kraftmiklum einhendum og léttum switch-stöngum. Þetta er burðarmikil stærð í Plus línunni og hentar fullkomlega í sjóbirting og lax, með stöngum í línuþyngd #7–8.
Hjólið er rennt úr flugvélaáli og er með Type III yfirborðshúðun sem ver það gegn sliti, rispum og krefjandi aðstæðum. Silfuráferðin er klassísk, látlaus og stílhrein – hjól sem parast vel með öllum litum og gerðum stanga. Inni í hjólinu er innsigluð kolefnisbremsa, sem veitir bæði mýkt og áreiðanleika við öll stillingarsvið – hvort sem þú ert að veiða með fínni taum eða berjast við stórlax í straumi. Nýr, stærri bremsuhnappur auðveldar stillingar, og lokaða grindin kemur í veg fyrir að línur eða taumefni sleppi út fyrir spólu – sérstaklega gagnlegt við notkun á grönnum mono-rennilínum eða púpulínum.
7Plus sameinar gott jafnvægi, léttleika og kraft. Það er frábær kostur fyrir þá sem vilja hjól sem stenst allar íslenskar aðstæður.
Helstu eiginleikar:
• Öflugt hjól fyrir sjóbirting og lax
• Sterk innsigluð kolefnisbremsa – stöðug og slétt í öllum stillingum
• Stærri bremsuhnappur – betra grip og nákvæm stilling
• Lokuð grind – heldur línum og taumefnum þar sem þau eiga að vera
• Type III anodisering – mjög slitsterk og saltvatnsþolin
• Hröð og tvítryggð spóluskipting
• Litur: Silfur
Tæknilýsing:
• Stærð: #7–8 (einhendur), #6–7 (tvíhendur)
• Þvermál: 100 mm
• Spólubreidd: 32 mm
• Þyngd: 198 g
• Rýmd: WF7 + 135 m af 20 lb Dacron
• Efni: 6061 T651 ál með Type III anodiseringu
GL Losunartöng (Stór)
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Vac Rac Stangahaldari með sogskálum
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4
Stonfo Reel Line Clip Taumhald
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Loop Classic 8/11
Loop Classic 7/9
Patagonia Guidewater S. Green Vatnsheldur Bakpoki
Loop Dry Tactical 15L Bakpoki
Stonfo Hnýtingakambur
Hackle Guard áhald
Sumo Stangahaldarar með Sogskálum
Coghlans Flugnanet
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Loop Opti Creek - Black 








