Einarsson Bronz 8Plus

> Burðarmikið hjól fyrir tvíhendur
> Hentar stöngum í línuþyngd #7–9
> Lokuð grind, öflug bremsa og klassískt útlit
> Vegur 220 g – rúmar WF9 + 150 m af 30 lb undirlínu

114.900kr.

Ekki til á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Einarsson Bronz 8Plus Fluguhjól

Einarsson 8Plus er hannað fyrir krefjandi aðstæður og stórfiska. Þetta er hjólið fyrir veiðimenn sem sækja í laxveiði með 12–14 feta tvíhendum, eða þurfa sterkt og stöðugt hjól með stærri einhendum í línuþyngd #9–10. Hjólið er rennt úr hágæða áli og er með Type III húðun, sem skilar miklu slitþoli, veðurvörn og fallegri áferð. Bronz liturinn er klassískur og hlýr.

Innsiglað bremsukerfi byggir á blöndu af kolefnis- og málmefna, sem skilar mýkt og áreiðanleika í öllum stillingum. Nýr, stærri bremsuhnappur gefur betra grip og auðveldar fínstillingu – sérstaklega mikilvægt þegar stór fiskur fer af stað. Hjólið er með lokaðri grind, sem veitir bæði aukinn styrk og kemur í veg fyrir að lína flækist eða rati inn fyrir spólu.

8Plus hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja létt hjól án þess að fórna áreiðanleika eða mótstöðu. Hvort sem þú ert að veiða í stærri laxveiðiám eða á sjóbirtingsslóð, þá er þetta hjólið sem stendur með þér.

Helstu eiginleikar:

• Hentar tvíhendum í línu #7–9
• Lokuð grind – kemur í veg fyrir að línur flækist eða sleppi
• Slétt og áreiðanleg bremsa – byggð á kolefnis- og málmdiskum
• Nýr, stærri bremsuhnappur – nákvæm og örugg stjórn
• Type III anodisering – endingargóð og saltvatnsþolin
• Tvítryggð og hröð spóluskipting
• Litur: Bronz

Tæknilýsing:

• Stærð: #8–9 (DH), #9–10 (SH)
Þvermál: 105 mm
Spólubreidd: 32 mm
Þyngd: 220 g
Rýmd: WF9 + 150 m af 30 lb Dacron
Efni: 6061 T651 ál með Type III anodiseringu