Devils Canyon eru léttir vöðluskór sem falla ákaflega vel að fótunum. Skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.
Devils Canyon eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.
Korkers hefur í yfir 50 ár hannað og þróað skóbúnað fyrir útivistarfólk. Korkers framleiðir nokkrar gerðir af vöðluskóm sem allar eiga það sameiginlegt að vera einstaklega hentugar, þægilegar og öruggar. Allir skór frá Korkers koma með einkaleyfisvörðum búnaði sem nefnist OmniTrax og byggir á þeirri hugmyndafræði að nota sama búnað í mismunandi aðstæðum. Með OmniTrax má skipta út sóla/botni vöðluskónna eftir því hvar er veitt og hvernig undirlagið er.
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
Áhald fyrir hálfhnút
Loop Evotec G5 7/9
Hatch Finatic 12+
Dropper Festingar
Loop Multiblue Húfa
Loon Krókabox / Kónabox
Fishpond Tacky Pescador Flugubox XL
Coghlans Flugnanet
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Loon Taumaspóluhaldari
McLean Measure & Weigh XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Patagonia Guidewater S. Green Vatnsheldur Bakpoki
Stonfo Áhaldasegull
Bobtec 2 - Keflishalda
Taumaklippur 





















