Verulega öflug tvíhenda fyrir stærri laxveiðiár. Stöngin er hröð með öflugum toppi, en vinnur djúpt niður í handfang. Hún er einstaklega létt með hliðsjón af lengd og línuþyngd, sem gerir hana enn skemmtilegri fyrir vikið. Tvíhenduna má nota bæði með flotlínu sem og þyngstu sökklínum. Klárlega stöng sem getur allt!
Við mælum með að nota:
Jöklu sem vegur 550 grain + 15‘ línuenda.
Sog skothausinn sem vegur 550 grain + 15‘ línuenda.
Rangá sem vegur 500 grain + 15‘ línuenda.
Hönnun CND
Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.
Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch.
CND tilfinning
Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.
Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.
CND fágun
CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.
Costa Fly Line Veiðigleraugu 580G
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
McLean Weigh-Net Medium (M111) - Silungaháfur með Innbyggðri Vog
Dubbing tól með klemmu
Loop Opti Creek - Black
Fishpond FlyLite Veiðivesti (Dömu)
Fishpond Stormshadow Lumbar Pack - Vatnsheld Mittistaska
Fishpond Stormshadow Rolling Carry-On - Ferðataska
Dubbing tól
Hagla- og kúlugeymslur
Elite Fluguhnýtingasett
Áhaldaslá á þvingur
Coastal Copper Veiðigleraugu
McLean Foldable Weight-Net (M115) - Silungaháfur með Innbyggðri Vigt
Costa Fantail Pro Veiðigleraugu 580G
Nám 12,3' #7/8
Vac Rac Pro Stangahaldari með segli
Hatch Finatic 12+
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Bakpoki
Loop Opti Speedrunner - Aurora Turquoise
Guideline Aura Bronze 7/8
Stonfo Áhaldasnúra
Loon Graffitolin Ferrule Vax - Samskeytavax
Smith Creek Taumaspóluhaldari - Burnt Orange
360 Dubbing tól
Stonfo Áhaldasegull
CND Gravity 12,7' #8/9 




















