Ef þú ert að leita að stuttri og hraðri stöng, með miklu afli, þá er þetta græjan fyrir þig. Stöngin hentar vel í meðalstórar ár og ber bæði flotlínur og sökklínur. Þrátt fyrir að vera öflug, er stöngin skemmtileg í fiski og vinnur vel í hverskonar veðuraðstæðum.
Við mælum með að nota:
Sandá #8
Hofsá #8
Jöklu sem vegur 450 grain + 10-12‘ enda.
Sog skothausinn sem vegur 425 grain + 10-12‘ enda.
Hönnun CND
Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.
Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch.
CND tilfinning
Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.
Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.
CND fágun
CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.
Guideline Elevation 9,9' #7
GL Hitamælir
Veniard Silver Pheasant Body Feathers
Loop Opti Gyre - Black
Loop Z1 10' #5
Dropper Festingar
Loop 7X 10' #6
Echo Base 2/3
Patagonia Guidewater S. Green Vatnsheldur Bakpoki
Echo Lift 9' #8
Loop Classic 8/11
Loop 7X 9' #7
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Loop Opti Runner - Black
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Loop 7X 9' #8
Echo Lift 8' #4
Loop 7X 10' #5
Guideline NT11 Switch-stöng 11,6' #8/9 - 6 pcs
Loop 7X 10' #7
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Loop Opti Rapid - Black
Áhaldaspóla
Loop Opti Strike - Black
Stonfo Áhaldasegull
Loop 7X 9' #5
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Stonfo Áhaldasnúra
Loop Opti Dryfly - Black
Echo Lift 9' #7
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Loon Áhaldasett
Loop 7X 11,6' #7
Nám REN 11,6' #6 








