Aquanova intermediate er framþung flugulína sem má nota með púpum, straumflugum, smáflugum og meðalþungum túpum. Tefloni er blandað í kápu línunnar til að gera hana sleipari og til þess að hrinda frá sér óhreinindum. Línan beinsekkur, þ.e. sekkur fyrst og hraðast fremst, næst agninu. Sökkhraði hennar er 3,8 cm/sek til 5 cm/sek. Heildarlengd línunnar er 27 metrar.
Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.
Loon Stream Soap - Vistvæn sápa
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Stonfo Áhaldasegull
Við straumana - veiðibók
Losunartöng
Leech ATW3 - Intro - Copper
Leech ATW Kidz Black - Veiðigleraugu fyrir börn
Loon Small Caddy Smábrúsafesting
Leech X2 - Performance - Copper Silver 

