Switch-stangir fyrir lax- og silungsveiði

Switch-stangir eru millivegur á milli einhenda og tvíhenda og bjóða upp á mikla fjölhæfni í fluguveiði. Þær má nota bæði sem einhendu og tvíhendu eftir aðstæðum og kasttækni. Switch-stangir henta vel í laxveiði og veiði á stærri silungi, þar sem þörf er á lengri köstum og betri línustjórnun.