Á morgun, laugardaginn 14. febrúar, sest Birkir Mar Harðarson við væsinn og hnýtir fyrir gesti og gangandi. Birkir hefur komið víða við í veiðinni og er mörgum kunnur sem veiðimaður, fluguhnýtari og leiðsögumaður. Að auki er hann annar þáttastjórnandi hlaðvarpsins Hylurinn, þar sem fluguveiði og fluguhnýtingar eru tekin til umfjöllunar.
Víðtæk reynsla
Birkir hefur verið viðloðinn fluguveiði nær alla ævi og starfað við leiðsögn víða um land, bæði í lax- og silungsveiði. Hann hefur meðal annars leiðsagt í Norðurá og Hofsá og þekkir jafnframt vel til á sjóbirtingsslóðum sunnanlands, svo sem í Tungufljóti, Vatnamótum og Geirlandsá. Undanfarna vetur hefur hann einnig starfað við leiðsögn í Argentínu, þar sem hann hefur kynnst ólíkum aðstæðum og sótt innblástur sem hefur mótað nálgun hans við hnýtingaborðið.
Sjóbirtingurinn í brennidepli
Á viðburðinum verður sjóbirtingsveiðin í forgrunni. Birkir mun hnýta straumflugur fyrir birting, sínar eftirlætisflugur sem hafa sannað sig í veiði víða. Gestir fá tækifæri til að fylgjast með hnýtingunum frá grunni, sjá hvernig áhugaverðar útfærslur verða til og fá innsýn í það sem skiptir máli þegar straumflugur eru annars vegar.
Við hlökkum til að taka á móti veiðimönnum og áhugasömum hnýturum í Veiðiflugum laugardaginn 14. febrúar, milli kl. 12 og 15.
