Monomaster taumagleypir

Eflaust kannast flestir við að skipta um taum á flugulínunni og vita svo ekkert hvað skal gera við efnið? Oftast endar það í vasa veiðimanna, í töskunni, vestinu eða það sem verra er – einhverstaðar í náttúrunni.

Monomaster er bráðsniðug græja sem er hönnuð til að leysa þetta vandamál og geyma notaða tauma og taumaefni. Taumaefni sem framleitt er úr næloni brotnar ekki niður í náttúrunni, nema á mjög löngum tíma. Það getur því reynst banvæn gildra fyrir mörg dýr. Sérstaklega eru fuglar og lítil spendýr viðkvæm þar sem þau hafa tilhneigingu til að nota það sem varpefni. Þess vegna er nauðsynlegt að halda nælonúrgangi frá umhverfinu og farga á ábyrgan hátt í ruslatunnuna.

Skyldueign fyrir alla veiðimenn!