Við straumana er falleg og vönduð bók ætluð veiðimönnum sem vilja skrá aflabrögð sín, veiðisögur og minningar frá veiðidögum. Bókin er hugsuð sem persónuleg ferðasaga veiðimannsins – þar sem hver dagur við árbakkann fær sitt pláss, og tímans tönn nær ekki að þurrka út.
Bókina prýða glæsilegar myndir eftir Guðmund frá Miðdal, ásamt vel völdum tilvitnunum um veiði og tengsl mannsins við náttúruna, sem veita innblástur og stemningu fyrir hverja færslu. Hvort sem þú ert byrjandi eða reynslumikill veiðimaður, þá er þessi bók skyldueign í veiðitöskuna – frábært verkfæri til að varðveita það sem mestu skiptir: augnablikin sem urðu eftirminnileg.
Loop ZT Tvíhendupakki 13,2' #8
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Guideline Elevation 13' #8/9
Guideline Scandi Black/Bronze 7/9
Tacky Pescador MagPad - Small - Smoke Grey - Flugubox
Guideline Aura Titan 3/4
Loon Nano Light UV ljós
Fishpond Confluence Net Release 2.0 Háfafesting
Fulling Mill Guide Flugubox - Grey
Veiði, von og væntingar 


