Tvöfaldur stangahaldari frá Vac-Rac, einhver sá áreiðanlegasti á markaðnum. Þessir eru mikið notaðir af leiðsögumönnum hérlendis en á þeim rúmast 4-8 veiðistangir. Hæð þeirra er 13 cm en hægt er að kaupa upphækkanir aukalega, sem getur komið sér vel fyrir þá sem nota stór veiðihjól. Stangahöldurunum fylgir geymslupoki og hlífðarspjöld fyrir sogskálarnar. Hentar á allar gerðir bíla, ál, stál og plast. Einnig fáanlegur með segli.
Vac-Rac stangarfestingar hafa verið á markaðnum frá árinu 1991 og væru það sennilega ekki enn nema þeim væri treystandi – Sannarlega stangahaldarar sem eru traustsins verðir!
Fishpond Waterdance Pro Guide - Mittistaska
Losunartöng
Loon Snake River Mud - Sökkefni
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Leech ATW1 - Intro - Yellow
Tactical Op Drops - Móðuvörn
Loon Henry's Sinket - Sökkefni á flugur
Fishpond Swivel Áhaldagormur
GL Losunartöng (Stór)
Loon Krókabox / Kónabox 

