Thingamabobbers eru án efa með vinsælustu tökuvörum á markaðnum. Þeir sameina allt það sem ætlast má til af góðum tökuvörum en þeir sjást vel, eru næmir á töku og þeim er auðvelt að kasta. Til að festa tökuvarann er taumurinn brotinn saman svo hann myndi lykkju, henni er svo stungið í gegnum augað á tökuvaranum og velt yfir belginn. Þá er áföstum pinnanum stungið í augað svo tökuvarinn færist síður úr stað.
Afar auðvelt er að færa tökuvarann upp og niður tauminn eftir dýpt vatnsins sem veitt er. Thingamabobbrer er frábær tökuvari sem fæst í tveimur stærðum og eru fimm tökuvarar í mismunandi litum í hverjum pakka. Minni gerðin (1/2“) hentar í viðkvæm veiðisvæði og ber uppi allt að tvær meðalstórar tungsten púpur. Þegar veitt er í meiri straum eða þegar halda þarf uppi mjög þungum púpum er stærri gerðin (3/4“) ákjósanlegri.
Loon Tip Toppers Tökuvarar Small
Stonfo tökuvarar með splitti
Vac Rac Stangahaldari með segli
Leech ATW3 - Intro - Yellow
Stonfo TRR Pedestal Borðfótur
GL Áhaldaspóla
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Áhald fyrir hálfhnút 



