Smartwool Hike Classic Maximum Ullarsokkar

Þykkir, einstaklega hlýir merínó ullarsokkar með þykkustu og best einangrandi dempuninni frá Smartwool. Fullkomnir fyrir langar göngur, í bakpokaferðir, í veiðina og kaldar aðstæður þar sem hámarks þægindi og öryggi skipta máli. Flatur táfótssaumur og teygjustuðningur við rist tryggja þétt og þægilegt snið.

5.995kr.

Hike Classic Maximum eru hannaðir fyrir þá sem vilja mesta mögulega hlýju, mýkt og vörn í krefjandi útivist. Sokkarnir eru úr hágæða merínó ull sem stýrir hitastigi, dregur raka frá húðinni og bælir lykt náttúrulega. Nylon eykur slitstyrk og endingu, á meðan elastane tryggir sveigjanleika og gott snið.

Þessi útgáfa er með „maximum cushion“ um allan sokkinn – þykkustu og hlýjustu dempunina sem Smartwool býður upp á. Þetta veitir frábæra höggdeyfingu og dregur úr þreytu í löppum, sérstaklega þegar gengið er langt með bakpoka eða í krefjandi landslagi. Hæðin hentar vel með flestum gönguskóm og veitir góða einangrun upp á sköflung.

Teygja heldur sokkunum stöðugum og kemur í veg fyrir að þeir renni til eða krumpist, og flatur táfótssaumur eykur þægindi á löngum dögum í skóm. Þetta eru sokkar sem henta vel í vetur, í fjallgöngur, langtímahjól, bakpokaferðir og allt þar sem hitinn lækkar og fæturnir þurfa hámarks skjól.

Helstu eiginleikar

  • Hæð: Crew
  • Dempun: Maximum Cushion – þykkasta og hlýjasta dempunin
  • Elasticized arch brace – tryggir stöðugt og öruggt snið
  • Flatur táfótssaumur fyrir aukin þægindi
  • Hannaðir fyrir langar og erfiðar göngur, bakpokaferðir og kaldar aðstæður

Efnisupplýsingar

  • 74% Merínó ull
  • 25% Nylon
  • 1% Elastane