Starston eru frábærir vatnsheldir sokkar frá Sealskinz sem hafa sannað sig við kulda og erfiðar aðstæður. Þeir byggja á þriggja laga Aquasealz™ samsetningu þar sem vatnsheld himna situr á milli endingargóðs nælon-ytra lags og mjúkrar, einangrandi merínó ullar að innan. Þessi uppbygging ver gegn bleytu og vindi en hleypir út raka og hita sem myndast við áreynslu.
Ytra lagið er með fjögurra vídda teygju tryggir stöðugan stuðning og gott snið án þess að þrengja. Innra lagið er úr hágæða merínó ull, prjónað með terry-loop aðferðinni sem býr til mjúka og einangrandi loftvasa. Merínó ullin er náttúrulega lyktarbælandi, rakadræg og afar þægileg gegn húðinni.
Starston eru hannaðir fyrir kulda og eru frábærir í aðstæðum þar sem bæði einangrun og vatnsheldni skipta máli – allt frá vetrargöngum og fjallamennsku til stangaveiði í köldu loftslagi. Þetta eru vandaðir sokkar sem halda fótum hlýjum, þurrum og vel loftræstum dag eftir dag.
Áreiðanleg vatnsvörn í öllum aðstæðum
Uppfærð útgáfa af vatnsheldum sokkum frá Sealskinz sem tekst enn betur á við kulda og rigningu. Rakir og kaldir fætur valda notandanum óþægindum við iðju sína. Doða í tám, blöðrur og frostbit má forðast með notkun þessara vatnsheldu sokka. Þá má nota í fjölbreyttu hitastigi, í rigningu og snjó eða innanundir vöðlur og í útiskóm.
Hannaðir til að halda fótunum þurrum og hlýjum
Sealskinz notar einstaka þriggja laga uppbyggingu í sokkana með 100% vatnsheldri filmu að utanverðu, en úrvals merino-ull að innanverðu. Ullin veitir mikla hlýju og dregur úr svitamyndun. Ytra byrði sokkanna er úr nælonefni með fjögurra þátta teygju sem tryggir aukin þægindi og meiri hreyfanleika.
Auka lag fyrir meiri hlýju
Sokkarnir eru hannaðir með aukna hlýju í huga og því gerðir úr fínustu merino-ull. Að auki hefur auka lagi verið komið fyrir í sokkunum til að gera þá enn hlýrri.
Tilvaldir í hverskonar útivist
Vatnsheldir sokkar eru heppilegir í aðstæðum þar sem hætta er á að fæturnir blotni. Þeir henta því í gönguferðir, hjólreiðar, fjallgöngu, veiðina eða útivinnuna.
Gerðir fyrir þægindi
Sokkarnir eru hannaðir með hnökralausri aðferð til aukinna þæginda. Tásaumar eru flatir og aukinn stuðningur hafður í hæl og við ökkla. Þannig verður upplifun notandans betri með þægindi í fyrirrúmi.
Handsaumaðir og prófaðir
Sérhvert sokkur er handsaumaður í Bretlandi og er vatnsheldni þeirra prófuð áður en þeir fara á markað.
Veniard Hare Mask
Loop 7X 9' #5
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Guideline Elevation 9' #5
Loop 7X 9' #8
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
Nám REN 11,6' #6
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Jungle Cock Gervifjaðrir
Echo Lift 9' #7
Guideline NT11 Switch-stöng 11,6' #6/7 - 6 pcs
Loon Strike Out - Tökuvari
Loon Skæratöng
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
Loop Connecting Derhúfa
Loon Hydrostop - Vatnsvari
Scott Centric 9‘ #4
Loon Top Ride - Þurrfluguduft 








