SALAR Duke Matte Black TWO

> Kraftmikið hjól fyrir fjölbreytta laxveiði
> Hentar 11–13 feta stöngum í línuþyngd #7-9
> Glæsilegt svart útlit með nákvæmri 10 kg bremsu
> Vegur 305 gr. – rúmar 150 m af 40 lb undirlínu

159.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

SALAR Duke Matte Black TWO – 7/9 Fluguhjól

Duke TWO (Matte Black) er stöðugt og fjölhæft fluguhjól fyrir veiðimenn sem þurfa traust hjól fyrir sjóbirtings- og laxveiði. Það passar fullkomlega með 11–13 feta stöngum í línuþyngd #7-9 og veitir bæði jafnvægi og mótstöðu í straumþungum aðstæðum.

Hjólið er rennt úr slitsterku áli með matt svörtu yfirborði sem sameinar góða vörn og fágað útlit. Það er skreytt með messinghlutum og ber klassíska S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi sem tryggir öruggt jafnvægi og yfirbragð.

10 kg innsigluð diskabremsa býður upp á nákvæma og örugga stjórn – hvort sem fiskurinn tekur á rás eða heldur sig djúpt í straumi. Bremsan er stillt með stjörnulaga messinghnappi sem snýst mjúklega og gerir fínstillingu auðvelda. Við hliðina er hljóðhnappur sem þú getur kveikt eða slökkt á, allt eftir því hvort þú vilt veiða í hljóði eða heyra sönginn úr hjólinu.

Helstu eiginleikar:

• Hentar vel fyrir lax og sjóbirting
• 10 kg innsigluð diskabremsa – örugg, mjúk og áreiðanleg
• Stjörnulaga messinghnappur fyrir nákvæma bremsustýringu
• Hljóðhnappur (on/off) – stillanlegur eftir þörf og aðstæðum
• Klassísk S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi
• Breið og fáguð spólurönd fyrir lófabremsu
• Anodiserað slitsterkt ál – saltvatnsþolið
• Laxamerki á hliðum
• Hægt að snúa fyrir vinstri eða hægri hönd
• Kemur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Matte Black

Tæknilýsing:

• Stærð: #7/9
• Þvermál: 96 mm
• Spólubreidd: 55 mm
• Þyngd: 305 g
• Rýmd: 150 m af 40 lb undirlínu + skothaus og lína