SALAR Duke Hunter Green FOUR

> Öflugt hjól fyrir stærstu ár og þyngstu línur
> Hentar 14–16 feta tvíhendum í línuþyngd #10-12
> Nútímaleg tækni með klassísku útliti
> Vegur 455 gr. – rúmar 300 m af 80 lb undirlínu

215.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

SALAR Duke Hunter Green FOUR – 10/12 Fluguhjól

SALAR Duke FOUR er hannað fyrir erfiðustu veiðiaðstæðurnar og stærstu laxana – hjól sem bregst ekki undir álagi, sama hvað dynur á. Þetta er stærsta og öflugasta hjólið í Duke línunni, sérstaklega ætlað fyrir 14–16 feta tvíhendur í línuþyngd #10–12. Það rúmar allt að 300 metra af 80 lb undirlínu ásamt skothaus og rennilínu.

Hjólið er smíðað úr áli með messing smáatriðum sem gefa því einstakt jafnvægi milli hefðar og nýsköpunar. S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi og messingmótvægi undirstrikar klassíska nálgun í hönnun. Breið og fáguð spólurönd veitir góða möguleika á að stjórna með lófa þegar þarf að bremsa í köstum eða í bardaga.

Í hjólinu leynist innsigluð 10 kg diskabremsa, sem stillist með innbyggðum stjörnulaga bremsuhnappi. Þú hefur nákvæma stjórn með einum snúningi – frá núlli upp í fulla bremsu. Hægt er að kveikja eða slökkva á hljóði hjólsins, með þar til gerðum hnappi. Þetta er hjól sem gefur frá sér klassískt „sönghljóð“ þegar þú vilt – eða algjört næði þegar það skiptir máli. Hjólið kemur í vönduðu leðurhulstri með blindpressuðu merki.

Helstu eiginleikar:

• Fyrir stærstu stangir og stærstu fiska – fullkomið á 15–16 feta tvíhendur
• 10 kg innsigluð diskabremsa – stillanleg með einum snúningi
• Stjörnulaga bremsuhnappur – liggur vel að fingrum
• Stillanlegur messing-hnappur – on/off
• Breið, fáguð spólurönd fyrir lófabremsu
• S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi og messingmótvægi
• Smíðað úr saltvatnsþolnu áli
• Útskorið laxamerki á hlið
• Kemur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Matte Hunter Green

Tæknilýsing:

• Stærð: #10/12
• Þvermál: 115 mm
• Spólubreidd: 67 mm
• Þyngd: 455 g
• Rýmd: 300 m af 80 lb undirlínu + skothaus og lína