SALAR Daisy Burnt Bronze TWO – 7/9 Fluguhjól
Daisy TWO er fjölhæft og áreiðanlegt hjól fyrir veiði í miðlungsstórum ám og fjölbreyttum aðstæðum. Hjólið er heppilegt fyrir kraftmiklar einhendur og styttri tvíhendur, í línuþyngd #7–9, og hentar stöngum sem eru 10–12 fet að lengd.
Fluguhjólið er úr póleruðu áli með Burnt Bronze áferð, sem sameinar fallegt yfirborð og mikla endingu. Á hliðunum prýðir blómalagaður útskurður, sem gefur Daisy línunni sitt einstaka og fágaða útlit. Klassísk S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi tryggir jafnvægi og stíl. Bremsuhnappurinn úr messing, í táralaga formi, liggur þægilega í fingrum og er auðvelt að stilla – jafnvel í krefjandi veðri.
4 kg innsigluð diskabremsa skilar sléttri og öruggri mótstöðu – hvort sem barist er við sjóbirting í miklu rennsli eða lax í seiðandi straumi. Hnappur er staðsettur þar sem þumallinn hvílir og hægt er að kveikja eða slökkva á hljóði hjólsins eftir þörfum. Það kemur í vönduðu leðurhulstri með blindpressuðu merki.
Helstu eiginleikar:
• Öflugt hjól fyrir einhendur og styttri tvíhendur
• 4 kg innsigluð diskabremsa – slétt og áreiðanleg
• S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi
• Daisy útskurður á hliðum – blómalagað mynstur
• Táralaga messingbremsuhnappur
• Stillanlegur smellari (on/off)
• Burnt Bronze – slitsterkt og saltvatnsþolið
• Silfurlitað laxamerki
• Kemur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Burnt Bronze
Tæknilýsing:
• Stærð: #7/9
• Þvermál: 95 mm
• Spólubreidd: 44 mm
• Þyngd: 270 g
• Rýmd: 150 m af 40 lb undirlínu + skothaus og lína