SALAR Daisy Black FOUR – 10/12 Fluguhjól
Salar Daisy FOUR er stærsta og kraftmesta hjólið í Daisy línunni frá Frödin. Þetta hjól er smíðað fyrir stærstu árnar, þyngstu fiskana og erfiðustu aðstæðurnar. Það veitir öryggi, styrk og góða stjórn í lögnum og ströngum bardögum. Það hentar sérlega vel fyrir 14-16 feta tvíhendur í línuþyngd #10-12.
Hjólið er rennt úr svartlituðu, póleruðu áli og skreytt með málmskorinni blómaáferð, en þaðan dregur Daisy nafnið sitt. S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi gefa hjólinu tímalaust útlit sem höfðar til margra veiðimanna. Bremsuhnappurinn er úr messing og hannaður í táralaga formi sem liggur vel að fingrum.
4 kg innsigluð diskabremsa er einstaklega fíngerð og má stilla með einum snúningi. Hægt er að kveikja eða slökkva á hljóði hjólsins eftir þörfum, með þar til gerðum brass-hnappi. Hjólið hefur kemur í fallegu og mjúku leðurhulstri með blindpressuðu merki.
Helstu eiginleikar:
• Klassískt fluguhjól fyrir stærri tvíhendur
• 4 kg innsigluð diskabremsa – slétt og öflug
• Fílabeinalitað handfang og silfurlitað laxamerki
• Smíðað úr saltvatnsþolnu póleruðu áli
• Blómalagað mynstur á hliðum – Daisy útskurður
• S-laga sveif með klassísku útliti
• Stillanlegur smellari (on/off)
• Komur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Svart
Tæknilýsing:
- Stærð: #10/12
- Þvermál: 114 mm
- Spólubreidd: 52 mm
- Þyngd: 420 g
- Rýmd: 300 m af 80 lb undirlínu + skothaus og lína