Patagonia W’s Swiftcurrent Traverse Vöðlupakki I er vel samsettur dömupakki þar sem léttar og meðfærilegar vöðlur frá Patagonia eru paraðar við þægilega vöðluskó. Swiftcurrent Traverse vöðlurnar eru hannaðar með þarfir kvenna í huga og bjóða upp á góða hreyfigetu, vandað snið og trausta vörn geng vatni.
Vöðlurnar eru saumaðar úr fjögurra laga endurunnu efni sem andar vel og er með vatnsfráhrindandi DWR-áferð án PFAS-efna. Efnið er sterkt án þess að gera vöðlurnar þungar eða stífar. Þær taka lítið pláss í farangri og henta því vel í veiðiferðir þar sem búnaðurinn þarf að vera léttur, en samt áreiðanlegur.
Sniðið er útfært fyrir konur, með ergonomískum fótum og klofsaumi með fellingu sem auðveldar hreyfingu bæði í vatni og á bakka. Saumagerðin dregur úr spennu í efninu, sem eykur endingu og gerir viðgerðir einfaldari ef á þarf að halda. Skálmarnar eru slitsterkar og með ökklavörn, og sokkarnir eru mótaðir til að sitja vel yfir langan dag.
Hægt er að nota vöðlurnar bæði sem hefðbundnar brjóstvöðlur og mittisvöðlur. Drop-seat kerfið með flötum smellum gerir notkunina þægilegri úti við og Secure Stretch™ vöðlubelti fylgir. Að framan er stór teygjanlegur brjóstvasi með rennilás, auk innri vasa með rennilás og opins vasa fyrir smærri hluti. Festingar fyrir verkfæri, lykkjur fyrir bakpoka við bringu og þurrkunarlykkja á baki auka notagildið.
Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju og sameina þannig vandaða hönnun, góða endingu og ábyrgari framleiðslu.
Í pakkanum er val á milli tveggja gerða af vöðluskóm. Laerdal Vibram vöðluskórnir frá Guideline eru hannaðir sérstaklega fyrir konur og passa vel við lengri veiðidaga. Þeir eru léttir, hlýir og þægilegir, en veita jafnframt góðan stuðning við ökkla. Vibram® Idrogrip gúmmísólinn gefur öruggt grip á blautu undirlagi og styrkingar á tá og hæl auka endingu í grýttu landslagi.
Chrome Lite skórnir frá Korkers eru léttir og liprir, með sportlegu sniði og BOA® vírakerfi sem auðveldar að herða þá og losa. Kling-On Rock™ sóli veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi og innra frárennsliskerfi losar vatn hratt úr skónum. Þeir henta vel þegar gengið er mikið og áherslan er á léttleika, hreyfigetu og þægindi.














































