Patagonia Swiftcurrent Traverse Vöðlupakki II er vel samsettur pakki þar sem léttleiki, hreyfigeta og góður stuðningur fara saman. Swiftcurrent Traverse vöðlurnar eru úr fjögurra laga H2No™ Performance öndunarefni sem er vatnshelt, slitsterkt og þægilegt í notkun. Ysta lagið er úr 100% endurunnu pólýester og vöðlurnar eru með vatnsfráhrindandi DWR-áferð.
Þetta eru rennilásavöðlur sem taka lítið pláss í tösku og henta vel í lengri ferðir, göngur og veiði þar sem hreyfanleiki skiptir máli. Formsaumaðir fætur, ergonomískt bak og sérstakt klofsnið draga úr álagi á sauma og gefa góða hreyfigetu þegar gengið er, vaðið eða kropið við bakka. Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.
Vatnsheldur YKK® rennilás að framan gerir auðvelt að fara í og úr vöðlunum. Teygjanlegt mittisband með snúrusamdrætti og Secure Stretch™ vöðlubelti tryggja þægilega aðlögun. Að innan er rúmgóður teygjanlegur vasi með rennilás fyrir verðmæti og annar teygjuvasi fyrir smáhluti. Aftan á er hengilykkja sem nýtist við þurrkun og geymslu.
Að utan eru tveir teygjanlegir brjóstvasar með rennilásum fyrir flugubox, verkfæri og annan búnað. Festingar aftan á nýtast fyrir háf og aukahluti. Við ökklasvæði eru slitvarnarhlífar sem verja gegn núningi og sokkarnir eru mótaðir með sokkalíku sniði til að auka þægindi yfir langan dag.
Í pakkanum er val á milli tveggja vöðluskóa frá Korkers. Devils Canyon eru léttir, þægilegir og falla vel að fæti. Þeir veita góðan ökklastuðning og frárennslisrásir losa vatn hratt úr skónum þegar komið er upp á bakka.
Darkhorse skórnir eru sterkari í uppbyggingu og bjóða upp á meiri stuðning. Þeir eru með 3PFS-kerfi sem styður við ökkla og liðbönd og skorðar fótinn vel. Báðir skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi og útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.
Guideline NT11 Fast Full Flex 13' #8/9 - 6 pc
Fishpond Switchback Wading System 2.0 - Mittistaska 













































