Stealth er nýstárlegt veiðivesti frá Patagonia sem hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt. Það býr að mörgum góðum eiginleikum, enda bæði fjölhæft og þægilegt notkunar. Vestið er framleitt úr 100% endurunnu pólýesteri með teygjanlegum hliðum til að tryggja góða hreyfigetu.
Framan á vestinu eru tveir rúmgóðir renndir vasar auk margra minni vasa sem rúma allt sem þarf við veiðar. Að auki eru nokkrir lokanlegir öryggisvasar fyrir símann, bíllykla og annan búnað. Í vestinu er innbyggður stangahaldari sem kemur sér vel þegar skipta þarf um flugu út í vatni. Þá er á því flugupaddi auk margra festipunkta fyrir áhöld. Á hliðum eru bönd til að stækka og minnka vestið eftir því hve vel klæddur notandinn er. Aftan á vestinu er stórt rennt hólf sem má nýta undir fatnað, nesti eða annan búnað. Stealth veiðivestið er framleitt í Fair Trade vottaðri verksmiðju.
BOA M2 XL Vírasett í Vöðluskó
Loop Dry 25L Yellow Bakpoki
Loop Opti Dryfly - Black
Guideline Elevation 9,9' #6
Loop Opti Strike - Black
Loop 7X 10' #7
Leech ATW2 - Intro - Yellow 








