Patagonia Stealth Pack Basin Green Veiðivesti

Stealth er frábært veiðivesti frá Patagonia sem býr að mörgum góðum eiginleikum, enda fjölhæft og þægilegt notkunar. Framan á vestinu eru tveir rúmgóðir renndir vasar auk margra minni vasa sem rúma allt sem þarf við veiðar. Að auki eru nokkrir lokanlegir öryggisvasar fyrir símann, bíllykla og annan búnað. Í vestinu er innbyggður stangahaldari sem kemur sér vel þegar skipta þarf um flugu út í vatni. Þá er á því flugupaddi auk margra festipunkta fyrir áhöld.

34.995kr.
17.498kr.

Stealth er frábært veiðivesti frá Patagonia sem býr að mörgum góðum eiginleikum, enda fjölhæft og þægilegt notkunar. Vestið er framleitt úr 100% endurunnu pólýesteri með teygjanlegum hliðum til að tryggja góða hreyfigetu. Framan á vestinu eru tveir djúpir renndir vasar auk margra minni vasa sem rúma allt sem þarf við veiðar. Að auki eru nokkrir lokanlegir öryggisvasar fyrir símann, bíllykla og annan búnað. Í vestinu er innbyggður stangahaldari sem kemur sér vel þegar skipta þarf um flugu út í vatni. Þá er á því flugupaddi auk margra festipunkta fyrir áhöld.

Á hliðum eru bönd til að stækka og minnka vestið eftir því hve vel klæddur notandinn er. Aftan á vestinu er stórt rennt hólf sem má nýta undir fatnað, nesti eða annan búnað. Stealth veiðivestið er framleitt í Fair Trade vottaðri verksmiðju.