Patagonia Stealth Hip Basin Green – Mittistaska

Stealth er mittistaska frá Patagonia sem hönnuð er með það í huga að gera notandanum kleift að hreyfa sig óhindrað, í vatni og á landi, með þægindin og hentugleikann í fyrirrúmi. Mittistaskan er fislétt og framleidd úr vatnsfráhrindandi efnum. Hún rúmar 11 lítra og er með mörgum hólfum og vösum undir allt það helsta sem þarf við árbakkann.

27.995kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Stealth er mittistaska frá Patagonia sem hönnuð er með það í huga að gera notandanum kleift að hreyfa sig óhindrað, í vatni og á landi, með þægindin og hentugleikann í fyrirrúmi. Mittistaskan er fislétt og framleidd úr vatnsfráhrindandi efnum. Hún rúmar 11 lítra og er með mörgum hólfum og vösum undir allt það helsta sem þarf við árbakkann.

Mittistaskan truflar ekki fluguköstin og er auðvelt að færa hana um mittið. Stórt rennt hólf að framan er hólfaskipt og getur borið alla helstu aukahluti og flugubox. Einnig er þar vatnsheldur renndur vasi undir t.d. síma, lykla eða annan búnað sem ekki má blotna. Á hliðum töskunnar eru renndir vasar undir smærri hluti. Að auki er rennihólf neðst á töskunni sem er tilvalið fyrir vatnsbrúsa eða önnur drykkjarföng.