Patagonia SST F. Grey Vöðlujakki

Hinn margrómaði SST vöðlujakki frá Patagonia er framleiddur úr þriggja laga vatnsheldu öndunarefni sem kallast H2No. Jakkinn er bæði slitsterkur og endingargóður, hannaður til að takast á við fjölbreyttar veðuraðstæður. Á jakkanum eru tveir rúmgóðir brjóstvasar undir fluguboxin eða önnur nauðsynleg tól. Á hliðum eru fóðraðir renndir vasar til að hvíla eða verma hendur. Hettan er áföst og unnt að þrengja á einfaldan hátt með einu handtaki. Aftan á jakkanum er renndur vatnsvarinn vasi sem nýtist undir húfu, vettlinga eða annan hlífðarfatnað.

69.900kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Hinn margrómaði SST vöðlujakki frá Patagonia er framleiddur úr þriggja laga vatnsheldu öndunarefni sem kallast H2No. Jakkinn er bæði slitsterkur og endingargóður, hannaður til að takast á við fjölbreyttar veðuraðstæður. Á jakkanum eru tveir rúmgóðir brjóstvasar undir fluguboxin eða önnur nauðsynleg tól. Þeir eru báðir vatnsheldir og sitja hátt svo unnt sé að vaða dýpra. Innan af þeim eru smærri vasar, s.s. undir taumaefni eða aðra smáhluti, auk festinga fyrir taumaklippur og losunartöng. Á hliðum eru fóðraðir renndir vasar til að hvíla eða verma hendur. Rennilásinn að framan er vatnsheldur og framleiddur af YKK.

SST-jakkinn er hannaður til að falla vel að notandanum og eru ermar saumaðar þannig að þær liggi náttúrulega að olnbogum. Ermar eru með úlnliðsböndum til að varna því að vatn leiti upp hendurnar, s.s. þegar fiski er sleppt eða í mikilli rigningu. Hettan er áföst og unnt að þrengja á einfaldan hátt með einu handtaki. Tvær lykkjur eru framan á jakkanum til að festa ýmis tól, en einnig á baki. Aftan á jakkanum er renndur vatnsvarinn vasi sem nýtist undir húfu, vettlinga eða annan hlífðarfatnað.