Patagonia Fjord Flannel Skyrta – Old Growth Green

Virkilega mjúk og hlý skyrta úr 100% lífrænni bómull sem hentar vel bæði sem yfirskyrta og í hversdagsnotkun. Tilvalin í sumarbústaðinn eða veiðiferðina.

21.995kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Patagonia Fjord Flannel Skyrta – Old Growth Green

Þægileg skyrta frá Patagonia sem sameinar hlýju, slitstyrk og náttúrulega áferð í fallegum dökkgrænum lit. Efni skyrtunnar er burstað til að fá mjúka og notalega áferð án þess að fórna slitstyrk.

Skyrtan hentar í fjölbreytta notkun, hvort sem er í vinnu eða útivist og fer vel ein og sér eða sem millilag. Tveir brjóstvasar með flipa og hnappi bjóða upp á hagnýta geymslu og klassískt sniðið gerir skyrtuna að áreiðanlegri og fjölhæfri flík. Hún er saumuð í Fair Trade vottaðri™ verksmiðju.

Eiginleikar

  • Lífræn bómull: Burstuð 100% lífræn bómull sem er mjúk, hlý og endingargóð.
  • Klassískt snið: Síðermaskyrta með hnappalínu og tímalausu útliti.
  • Tveir brjóstvasar: Með flipa og hnappi fyrir hagnýta og örugga geymslu smáhluta.
  • Faldur: Hægt að hafa lausan eða stinga ofan í buxur eftir því sem hentar.
  • Fair Trade Certified™: Framleidd við sanngjörn vinnuskilyrði og laun.