Patagonia Fitz Roy Icon Trad derhúfan er tímalaus og þægileg húfa sem sameinar klassískt útlit og ábyrga framleiðslu. Hún er gerð úr endingargóðu canvas-efni úr 100% lífrænni bómull sem andar vel og hentar jafnt til daglegrar notkunar og útivistar.
Skyggnið er framleitt úr NetPlus® efni, sem er 100% endurunnið úr fiskinetum, og er því bæði létt og umhverfisvænt. Húfan er með lágu sniði, óstífð og samsett úr sex spjöldum sem falla vel að höfðinu. Stillanleg efnisól að aftan svo hún henti sem flestum (One Size).
Varan er framleidd í Fair Trade Certified™ verksmiðju, sem þýðir að starfsfólk fékk sanngjarna greiðslu fyrir vinnu sína.
- Efni: 100% lífræn bómull (canvas)
- Skyggni: NetPlus® – 100% endurunnin fiskinet
- Snið: Lág krúna, óstífð, sex spjalda derhúfa
- Stærð: One Size (stillanleg)
- Þyngd: 85 g
- Framleiðsluland: Víetnam
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - R. Green
Fishpond Dakota 31" stanga- og hjólataska
Sealskinz Westwick - Vatnsheld Flísderhúfa
Tacky Pescador MagPad - Small - Smoke Grey - Flugubox
Finisher tool - fyrir endahnútinn
Fishpond Cimarron Sand - Vöðlutaska
Loon Áhaldasett
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Losunartöng
Loop Dry Tactical 15L Bakpoki
Patagonia Take a Stand T. Blue Derhúfa