Nextcast Air rennilínan er í einu orði sagt; framúrskarandi. Flestar sambærilegar línur eiga það til að kuðlast mikið, þær er erfitt að meðhöndla og veiðimaður þarf í sífellu að leysa úr flækjum. Með Nexctcast Air rennilínunni heyra þessi leiðindi sögunni til.
Nextcast Air er rennilína (e. shooting line) sem liggur hátt í vatnsfilmunni. Það gerir hún vegna sex loftganga sem í henni eru og gera það að verkum að hún helst á yfirborðinu. Línan er algjörlega kringlótt og hún réttist auðveldlega þegar hún er teygð. Hún er tiltölulega stíf sem gerir hana einstaklega meðfærilega þegar hún kemur í vatn.
Línan kemur í þremur þykktum, 38 lbs, 45 lbs og 55 lbs. Mælt er með að nota 38 lbs á einhendur og switch-stangir, 45 lbs á meðalstórar tvíhendur og 55 lbs á tvíhendur frá línuþyngd #9 og upp úr.
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4
Þræðari Elite 1mm
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Fishpond Burrito Vöðlutaska
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Echo Lift Einhendupakki 9' #7
Guideline Elevation 9,9' #6
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7
Bodkin - Nál með krók 